Nýburagjörgæsla (Vökudeild)
Fyrir börn sem fæðast veik eða fyrir tímann (fyrir 37. viku meðgöngu). Sum börn þurfa að dvelja á deildinni í nokkra daga, en flest eru í nokkrar vikur upp í nokkra mánuði, áður en þau eru nógu heilsuhraust til að fá að fara heim.
Það fyrsta sem þú tekur eftir þegar þú kemur inn á deildina, eru píp úr tækjum, lykt af sápu og spritti (út af stöðugum handþvotti) og rólegt og yfirvegað starfsfólk.
Ekki hika við að spyrja spurninga og ekki vera hrædd/ur við að snerta örsmátt barnið. Mæður og feður geta tekið jafnan þátt í brjóstagjöf og kengúrumeðferð, sem hjálpar til við að mynda tengsl við barnið.
Þið eigið eftir að læra hvað mismunandi píp-hljóðin tákna, og að skipta um bleyju á barninu án þess að fjarlægja það úr hitakassanum. Á þessari síðu fáið þið að vita meira um algengustu tæki sem eru notuð á nýburagjörgæslum, vinir & fjölskylda fá góð ráð um hvernig hægt er að hjálpa, og ef barnið á systkini þá eru hér nokkrar tillögur um hvernig er best að útskýra fyrir þeim hvers vegna litli bróðir eða litla systir geta ekki komið heim alveg strax.
Hitakassi

Heilandi umhverfi fyrir fyrirbura og veika nýbura. Þegar börn fæðast fyrir tímann, eru þau enn á fósturstigi og ekki tilbúin fyrir heiminn. Hitakassinn er notaður til að koma jafnvægi á líkamshita og hjálpa til við þyngdaraukningu og þroska. Hann er stilltur sérstaklega fyrir hvert barn. Hitakassinn er hlýr, með góðan raka og dempar umhverfishljóð. Oft eru sett teppi yfir hitakassann til að minnka áreiti frá ljósi og hljóðum úr umhverfinu, svo barnið fái þann svefn sem það þarfnast til að vaxa og dafna. Það að hylja hitakassann hjálpar fyrirburum að sofa lengur í einu og dregur úr áreiti sem fylgir hreyfingu fyrir utan „húsið“ þeirra. Það örvar líka þroska heila og augna.
Súrefnismettunarmælir

Mælir er staðsettur á hönd eða fót barnsins, til að mæla mettun blóðrauða (hemóglóbíns).
|
CPAP – Síblástur
Þessi gríma er kölluð CPAP (sípap) eða síblástur, og veitir stöðugt súrefnisstreymi. Hún er notuð við meðferð fyrirbura og nýbura með vanþroskuð lungu, glærhimnusjúkdóm (RDS), eða berkju- og lungnarangvöxt. Síblástur getur dregið úr hættu á sjónukvilla fyrirbura, sem er augnsjúkdómur. Fyrir nokkrum áratugum var sjónukvilli fyrirbura algeng afleiðing þess að hátt súrefnismagn var í hitakössum.
Öndunarvél

Þessi tegund öndunar-aðstoðar er notuð þegar fyrirburinn getur ekki andað án aðstoðar. Hlýju og röku lofti er dælt í lungu barnsins gegnum nef eða munn, með plastslöngu. Slangan er oft fest með plástrum við andlit barnsins, sem skilur eftir sig tímabundin ör á húðinni.
Sonda

Sonda er þunn plastslanga sem fer inn um nef eða munn barnsins, alla leið niður í maga.
Slangan færir mat eða lyf beint í maga barnsins.
Jafnvel þótt barnið geti ekki enn verið á brjósti, er hægt að gefa brjóstamjólk gegnum sondu.
|