Kengúrumeðferð

Hvað er kengúrumeðferð?

Kengúrumeðferð er lýsing á aðferð sem er notuð til að ýta undir bata fyrirbura á nýburagjörgæslum. Þessi aðferð er líka kölluð húð-við-húð meðferð og er notuð bæði af mæðrum og feðrum.

Náttúrulegur hiti foreldris hjálpar til við að lækna barnið. Þetta er líka frábær leið til að tengjast litla barninu. Barnið hlustar á hjartslátt mömmu eða pabba, öndun og rödd.

Í meðferðinni er barnið yfirleitt bara klætt bleyju og húfu, og er lagt með magann við bringu móður eða föður meðan þau sitja í þægilegum stól við hliðina á hitakassanum. Teppi er lagt yfir bak og fætur barnsins til að verja það gegn hitatapi. (Móðirin má vera í brjóstahaldara.)

Hvenær megum við byrja á kengúrumeðferð?

Oftast er hægt að byrja á þessari aðferð fljótlega eftir fæðingu, eða um leið og læknirinn gefur leyfi til.

Kengúrumeðferðin er ekki aðeins góð fyrir barnið, heldur getur hún líka heilað foreldrana og ýtt undir sjálfstraust þeirra. Ekki hika við að spyrja lækni eða hjúkrunarfræðing hvenær þið megið byrja.

Kyn foreldra

Mismunur er á hitastigi bringu föður og móður:

Brjóst móður er með náttúrulegan hitastilli en bringa föðurins getur orðið of heit. Þetta þýðir að ef barnið liggur á brjósti móðurinnar og barninu er ekki nógu hlýtt, þá hækkar hitastig brjóstsins, en lækkar ef barninu er of heitt. Faðirinn gæti því kannski þurft að nota aðferðina í aðeins styttri tíma í einu en móðirin.

Samt sem áður ættu báðir foreldrar að nota kengúrumeðferðina eins oft og hægt er, til að tengjast litla barninu og hjálpa því (og ykkur) að ná bata.

Staðreyndir um kosti kengúrumeðferðar

  • Jafnar hjartslátt
  • Dregur úr verkjum
  • Öndun verður reglulegri
  • Hjálpar við að auka þyngd
  • Eykur heilaþroska
  • Bætir súrefnismettun
  • Getur bætt brjóstamjólk móður
  • Betri svefn og ýtir undir djúpsvefn, sem eykur vaxtarhraða barnsins
  • Barnið grætur minna og er rólegra
  • Stöðugri blóðsykur
  • Örvar taugakerfið
  • Gæti útskrifast fyrr af spítala

Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós kosti kengúrumeðferðar og það ætti að nota hana eins fljótt og eins oft og hægt er.

Ensku heitin á kengúrumeðferð eru; skin to skin, Kangaroo Care Method, og Kangaroo Mother Care; skammstafað KMC.