Systkini fyrirbura

Að eignast fyrirbura hefur mikil áhrif á alla fjölskylduna, en sérstaklega á systkini barnsins.Við höfum heyrt um afbrýðisemi og hegðunarvandamál sem fylgja því þegar börn eignast systkini undir venjulegum kringumstæðum, en þegar barnið fæðist fyrir tímann, er hægt að margfalda það með fimm. Það fer eftir aldri systkina hversu vel þau skilja hvað er að gerast, en hér eru nokkur ráð:

  • Sýnið þeim myndir af nýja barninu eins fljótt og hægt er.
  • Útskýrið fyrir þeim að barnið megi ekki koma strax heim af sjúkrahúsinu, því það sé lasið og þurfi meðal.
  • Þegar þið sýnið systkinum mynd af fyrirburanum, segið þeim að slöngurnar séu fyrir mat og lyf, því barnið sé of lítið til að nota skeið. (Ef þau eru mjög ung, fullvissið þau um að þetta sé ekki smitandi, því kannski halda þau að þetta geti líka komið fyrir þau.)
  • Ef barnið er með síblástur (CPAP), útskýrið fyrir systkinum að þetta sé til að hjálpa barninu að anda.
  • Gangið úr skugga um að þau skilji hvers vegna þið eruð svona lítið heima við.
  • Segið þeim að þið elskið þau og veitið þeim fulla athygli þegar þið eruð heima.
  • Þið getið verið mjög utan við ykkur, en reynið samt að svara öllum spurningum sem systkini spyrja. Ef þið forðist að svara spurningum geta þau farið að búast við því versta.
  • Spyrjið hvort þau vilji kaupa gjöf handa barninu. Það lætur þeim finnast eins og þau séu hluti af lífi hennar/hans. (Þau verða líka örugglega ánægð að fá nýtt dót fyrir sig.)

Ung börn hafa gaman af að teikna myndir handa fólkinu sem þeim þykir vænt um, svo spyrjið hvort þau vilji teikna mynd handa litla barninu. Og ef þau fá að heimasækja barnið á nýbura-gjörgæsluna, biðjið þau um að teikna mynd af því sem þau sáu þar. Það er líka góð leið til að finna út hvernig þau upplifa heimsóknina.