Riffluð fyrirburahúfa

Þægileg húfa fyrir fyrirbura. Þessi uppskrift er mikið notuð á Vökudeild.

Húfan gefur vel eftir og þess vegna er auðvelt að setja hana á börnin. Það er enginn kantur eða uppábrot á húfunni, svo höfuð barnsins liggur í réttri stöðu.

Garn og prjónar

Sokkaprjónar nr. 4,5
Munstur: 2 sléttar, 2 brugðnar.

Mjúk bómull eða merínóull, bambus eða annað náttúrulegt garn fyrir ungbörn. Bómullargarn getur orðið stíft eftir þvott. En sum bómull þolir 60° þvott, sem er nauðsynlegt fyrir minnstu fyrirburana.

Bómull sem þolir 60° þvott

Mandarin Naturell — Mandarin Petit — Cotton 8/8 — Garnið í Søstrene Grene

Annað garn

Lanett er mjúk og endingargóð merínóull (stingur ekki)

Bambus og bambus-bómullarblöndur

Alpakka-silki er silkimjúk blanda og svipuð á þykkt og lanett

Alpakka-kasmír er æðislegt í vetrarhúfur, til dæmis í kringum útskrift

Annað mjúkt og náttúrulegt garn sem stingur ekki og þræðir losna ekki (eins og angóra).

Uppskrift að fyrirburahúfu

(Stærð fyrirbura er útskýrð neðst.)

Stærð (barns):

1/2 ummál:

Hæð húfu:

Fitja upp:

Skipt á 4 prjóna:

Prjóna þar til húfan mælist:

(56)

(18,5)

(16)

(72)

(18)

(14)

50

17

14,5

64

16

11,5

(44)

(15,5)

(13)

(56)

(14)

(10)

38

14

11,5

48

12

8,5

(32)

(12,5)

(10)

(40)

(10)

(7)

26

11

8,5

32

8

5,5

cm

cm

cm

ly.

ly.

cm

Úrtaka

1. umferð: *2 sléttar, 2 brugðnar, 2 sléttar, 2 brugðnar saman* (verður að 1 brugðinni). Endurtakið * allan hringinn.
2.-4. umferð: Prjónið 2 umferðir venjulega (2 sléttar, 2 brugðnar, 2 sléttar, 1 brugðin).
5. umferð: 2 sléttar, 2 brugðnar saman (= 1 brugðin), 2 sléttar, 1 brugðin.
6. umferð: 2 sléttar, 1 brugðin, 2 sléttar, 1 brugðin.
7. umferð: 2 sléttar, 1 brugðin, 2 sléttar saman, 1 brugðin.
8. umferð: 2 sléttar, 1 brugðin, 1 slétt, 1 brugðin.
9. umferð: 2 sléttar saman, 1 brugðin, 1 slétt, 1 brugðin.
10.-11. umferð: 1 slétt, 2 saman.

Dragið bandið gegnum lykkjurnar sem eftir eru og lokið gatinu.
Mikilvægt að festa alla enda þannig að áferðin sé mjúk fyrir viðkvæman koll.

Stærð fyrirbura

Oftast er nóg að miða við lengd fyrirbura til að finna rétta húfustærð

Minnsta húfustærðin (26) passar á fyrirbura sem eru ca. 23-30 cm.

Rifflaða húfan er teygjanleg, svo það er betra að nota stærð sem er sem næst stærð barnsins. (Höfuðummál barns gefur nákvæmustu stærð.)