Forsíða

Að eignast fyrirbura

Fyrirburi í hitakassa
Þessi litla dama er núna orðin unglingur
Enginn býst við að verða fyrirburaforeldri og það er í raun ekkert sem getur undirbúið þig fyrir ferðina framundan. Þú finnur kannski fyrir hræðslutilfinningu þegar þú kemur inn á nýburagjörgæslu í fyrsta sinn. Alls staðar eru gegnsæir hitakassar með smærri börnum en þú hefðir getað ímyndað þér að væru til. Þau eru tengd við slöngur og snúrur og það heyrast píp úr tækjum úr öllum áttum.
Þrátt fyrir allt þetta, þá er andrúmsloftið ótrúlega afslappað. Starfsfólkið virðist hafa góða stjórn á öllu, sem gefur þér öryggistilfinningu í þessari rússíbanaferð sem þú hefur nýlega lent í.
Þú átt eftir að komast að því af hverju starfsfólk nýburagjörgæslu er oft kallað englar.
Hér verður eftir fremsta megni reynt að koma með gagnlegar upplýsingar um fyrirburafæðingar og allt sem tengist því að vera fyrirburaforeldri. Þú munt læra meira um tækin og hvers vegna brjóstagjöf er mikilvæg fyrir fyrirbura, þú getur lesið sögur frá foreldrum sem hafa gengið í gegnum sömu reynslu, og lært um hluti sem þú skilur ekki enn. Fjölskylda og vinir fá góð ráð líka um það hvernig hægt er að hjálpa fjölskyldunni meðan á dvölinni stendur.
Ef þú átt barn sem dvelur á nýburagjörgæslu núna, gætirðu byrjað á að skoða Vonarvegginn, með fyrir & eftir myndum af börnum sem hafa útskrifast.
Öll börnin sem sjást á myndunum á þessari síðu eru löngu útskrifuð af nýburagjörgæslu og lifa nú lífi sínu á sama hátt og önnur börn.