Lífslíkur fyrirbura

Athugið að þetta eru tölur frá bandarískum spítala. Læknar geta betur metið lífslíkur hvers barns fyrir sig, enda er tekið mið af sjúkrasögu hvers barns.

  • Fæðing á 22. viku meðgöngu: Um 10% barna lifa
  • Fæðing á 23. viku: 50-66% barna lifa
  • Fæðing á 24. viku: 66-80% barna lifa
  • Fæðing á 25. viku: 75-85% barna lifa
  • Fæðing á 26. viku: Yfir 90% barna lifa

Meira en 95% fyrirbura sem fæðast milli 27.-30. viku lifa. Þó þessi börn séu mjög óþroskuð við fæðingu og eigi jafnvel eftir að glíma við heilsufarsvandamál, þá munu flest þeirra ná sér og þau hafa fá langtímaáhrif fyrirburafæðingar.

Fyrirburi er almennt notað yfir barn sem er fætt fyrir 37. viku meðgöngu

Barn fætt fyrir 26. viku meðgöngu eða er minna en 800 grömm við fæðingu er kallað lítill fyrirburi (míkró)

Barn fætt milli 27. og 37. viku er kallað fyrirburi

Barn fætt milli 37. og 42. viku er kallað fullburi.

Barn sem fæðist eftir fulla meðgöngu en er undir meðalþyngd, kallast léttburi.

Litlir fyrirburar

Litlir fyrirburar eru mjög viðkvæmir og hver dagur sem hægt er að lengja meðgönguna eykur lífslíkur barnsins.

Litlir fyrirburar þurfa að dvelja lengi á nýburagjörgæslunni, vegna þess hve löngu fyrir áætlaðan fæðingardag þeir fæðast. Þó svo að margir þeirra hafi engin langvinn einkenni fyrirburafæðinga, þurfa aðrir að glíma við alvarleg heilsufarsvandamál alla ævi.

Ef þú færð að heimsækja lítinn fyrirbura á nýburagjörgæsluna, þá mun það koma þér mjög á óvart hversu örsmátt barnið er. Barn sem fæðist á 27. viku er ekki nema um það bil 1 kg. Barn sem fæðist á 30. viku er um það bil 1,5 kg.

Litlir fyrirburar eru með þunna, hálfgegnsæja húð þannig að æðarnar eru sjáanlegar. Og þeir eru tengdir við mörg tæki.

Smelltu hér til að vita meira um helstu tækin á nýburagjörgæslu sem eru notuð til að lækna fyrirbura.

(Þýtt af fyrirburavef About.com, eftir Cheryl Bird, hjúkrunarfræðing á nýburagjörgæslu í Bandaríkjunum.)