Heklaður kolkrabbi

Heklaður kolkrabbi fyrir fyrirbura er hugmynd frá dönsku sjúkrahúsi. Hún hefur breiðst hratt um heiminn. Mörg sjúkrahús nota kolkrabbana sem viðbótarmeðferð fyrir fyrirbura.

Vökudeild Landspítala óskar reglulega eftir fleiri kolkröbbum því þeir eru fljótir að klárast. Hver sem er getur heklað kolkrabba til að gefa en þeir verða að uppfylla ákveðin öryggisatriði (sjá leiðbeiningar).

Það er hægt að fara með kolkrabbana beint í móttöku Vökudeildar, á 3. hæð Barnaspítala Hringsins.

Kolkrabbarnir hjálpa til við að róa fyrirbura. Þeir eru sagðir bæta öndun, koma jafnvægi á hjartslátt og hækka súrefnismettun í blóði. Það er talið að armar kolkrabbanna minni fyrirbura á naflastrenginn og að vera í móðurkviði, og þess vegna upplifi þeir meira öryggi. Fyrirburar sem hafa kolkrabba hjá sér eru auk þess ólíklegri til að toga slöngur og snúrur af sér.

Uppskriftin

(Neðar á síðunni er uppskriftin í formi sem er auðvelt að prenta út.)

Efni

  • Heklunál st. 3 – 3,5
  • 100% bómullargarn – Það er allt í lagi að nota afgangsgarn. Kolkrabbarnir mega gjarnan vera mismunandi í útliti og stærð (passið samt armalengdina, sjá neðar). Myndin hér fyrir neðan getur gefið ykkur nokkrar hugmyndir.
  • Fylling – Tróð eða trefjafylling (t.d. innihaldið úr púða). Passið bara að fyllingin verður að þola 60° heitan þvott, alveg eins og garnið.

Skammstafanir

umf – umferð, ly – lykkja, fl – fastalykkja, ll – loftlykkja, sm – saman, kl – keðjulykkja

Búkur

  • 1. umf           6 fl í galdralykkju/töfralykkju
  • 2. umf           2 fl í allar ly = 12 ly
  • 3. umf           2 fl í 2. hverja ly = 18 ly
  • 4. umf           2 fl í 3. hverja ly = 24 ly
  • 5. umf           2 fl í 4. hverja ly = 30 ly
  • 6. umf           2 fl í 5. hverja ly = 36 ly
  • 7-14. umf      Engin útaukning = 36 ly
  • 15. umf         *4 fl, 2 fl sm* samtals 6 sinnum = 30 ly
  • 16-17. umf    Engin útaukning = 30 ly
  • 18. umf         *3 fl, 2 fl sm* samtals 6 sinnum = 24 ly
  • 19-20. umf    Engin útaukning = 24 ly
  • 21. umf         *2 fl, 2 fl sm* samtals 6 sinnum = 18 ly
  • 22. umf         Engin útaukning = 18 ly
  • 23. umf         *7 fl, 2 fl sm* samtals 2 sinnum = 16 ly
  • 24. umf         Engin útaukning = 16 ly
  • 25. umf     Hér byrja armarnir: *1 fl, 50 ll, snúið við og gerið 2 fl í hverja ly, ljúkið með einni fl*

Endurtakið 7 sinnum þannig að það séu 8 armar í allt. Ljúkið með einni keðjulykkju í síðustu lykkju og togið garnið í gegn. Ef þið lendið í vandræðum með að láta armana snúast, heklið þá 3-4 fastalykkjur í hverja loftlykkju í staðinn, (sjá skýringarmynd á Lindersverden).

ATH! Af öryggisástæðum mega armarnir ekki vera lengri en 22 cm þegar þeir eru útteygðir – ef þeir mælast lengri en 22 cm þarf að hafa færri loftlykkjur. (Þetta er vegna kyrkingarhættu.)


Saumuð augu eru öruggari en tölur eða plastaugu, því þau detta ekki af

Augu

Heklið í einfaldan hvítan þráð. Það gerir 2 stk. 

Í staðinn fyrir að hekla augu er hægt að nota hugmyndaflugið og sauma þau í. (Ekki er mælt með að nota tilbúin augu úr járni eða plasti því það er ekki víst að þau megi fara inn í hitakassann hjá fyrirburunum, auk þess sem þau geta losnað af eftir þvott.)

  1. umf      4 fl í galdralykkju/töfralykkju
  2. umf      2 fl í hverja ly = 8 ly
  3. umf      2 fl í 2. hverja ly = 12 ly. Ljúkið með einni kl og togið garnið í gegn. Festið.

Saumið augasteina í miðju augans með svörtum þráð. Á myndinni er notað útsaumsgarn.

Höfuðskraut

Gerið til dæmis í sama lit og armarnir eru.

  1. umf      5 fl í galdralykkju/töfralykkju
  2. umf      2 fl í hverja ly = 10 ly
  3. umf      2 fl í 2. hverja ly = 15 ly. Ljúkið með einni kl og togið garnið í gegn. Festið.

Frágangur

Fyllið búkinn með tróði eða púðafyllingu og saumið höfuðskrautið á.

Festið augun á kolkrabbann og saumið á munn með eins mörgum sporum og þið viljið.

Um uppskriftina

ATH! Uppskriftin er eingöngu til einkanota og má ekki nota til að selja uppskriftina eða kolkrabbann. En það má að sjálfsögðu hekla og gefa eins marga og þið viljið. Félagið sem heldur utan um upplýsingar um kolkrabbana er Spruttegruppen í Danmörku.

Þýðing: Berglind Baldursdóttir

Kolkrabbarnir eru falleg gjöf með heilandi eiginleika

Einfalt prentskjal (sama uppskrift)